-=DRIFSKAFT=-
03.12.2006 21:05:46 / drifaarna

Jólaball Fsn

Hvað haldiði ??? Drífa skellir inn öðrum pistli á stuttum tíma....reyndar sama pistli og á gigantiskt en hvað um það, þessi er meira fyrir stelpurnar á Ak.

 Dagurinn í dag lá bara svo ósköp vel við, veðurblíðan fer svo vel í mig! Þessi fallegur dagur....þessi fallegi dagur...

Það er engin sjens að maður nái að toppa sjúkan húmor Önnu Margrétar og bullandi ýmindunarafl Hrannar, en hins vegar er létt að toppa Veru og Auði þar sem þær hafa lagt skónna á hilluna. En ég skellti inn myndum síðan á jólaballinu í gær í tilefni dagsins... www.picturetrail.com/drifa88.

Hið margrómaða jólaball Fsn var semsagt í gær á hótel Ólafsvík með mexókósku ívafi...maturinn fór nú misvel í fólk og vill ég meina að það sé ástæðan fyrir síðþreytu ónefnts aðila sem gerði það að verkum að hann svaf hálft ef ekki allt ballið Anna segist líka hafa fundið fyrir ónotum í mallanum en Hrönnsan lék á alls oddi.....greinilegt að maturinn fór ekki jafn illa í hana!! Það gæti líka verið að áfengi hafa sett strik í reikninginn...en tel ég það AFAR ólíklegt. Kvöldið heppnaðist alveg ágætleg...byrjuð heima hjá Ragnari og það fer ekki á milli mála að þau eiga lítinn brjálaðann kött sem er duglegur að kúka í koppinn sinn og hoppar svo um alla íbúðina og eltist við skó...já hann vakti óhug í mínu litla hjarta! Hann er eitthvað svo óttalega lítill og lúmskur...maður veit ekki hverju hann Rínó litli getur tekið uppá Mér líkar ekki við gæludýr sem eru minni en ég!

En ein spurnining til ykkar stelpur á Ak....hvernig var árshátíðin og hvar getur maður fengið að sjá myndir ?

Gigantiskar gellur

Æjj...hvað við erum fín ;)

Við frænkurnar


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.11.2006 21:56:37 / drifaarna

Endurkoma!!!!

NEI HALLÓ !!! Hvað segiðu um nýjan pistil ???? Þessi pistill er tileinkaður afmælisbörnum dagsins þ.e.a.s Veru hnoðra Dögg, Söru elskunni minni Sædal og Lillý gellu Jörgensen og öllum skvísunum á Akureyri...sakna þeirra ;) En núna er maður staddur í borg óttans og stefnan er sett á afmæli hjá veru dögg, en það skemmtilega við það er að hún á ekki von á okkur og við ætlum að mæta svona SURPRICE :-d já..það verður vonandi gaman og aldrei að vita nema að maður skelli sér í bæinn og taki nokkur dansspor...enda kann maður það best Annar er allt gott að frétta af mér....lífið gengur sinn vanagang og það eru að koma jól, enn og aftur! Mér er nú farið að hlakka all mikið til og öllum þeim dásemdum seim þeim fylgir,...þetta er besti tími ársins...hver er ekki sammála því ? En bæjó í bili....aldrei að vita hvenær næti pisill kemur :-D

» 13 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 12:59:28 / drifaarna

Smá svona í enda sumars

Sumarið búið og skólinn að byrja.....

Hnúturinn í maganum stækkar og stækkar.....

Kvíður svo fyrir vetrinum með öllu  myrkrinu og kuldanum :S...

Vonandi verður þetta í lagi.....

Dönsku dagarnir voru æðislegir.....get ekki sagt annað !!

En fékk helvíti skemmtilegt e-mail frá Lillý elskunni, þetta er ágætis blogg fyrir sumarið þar sem maður er búin að vera í svipuðu ástandi á hverri helgi :D hehe

You've been hit by the
>
> |^^^^^^^^^^^^^^| ||
> |...BEER TRUCK..........| ||'|";, ___.
> |_..._..._______===|=||_|__|..., ] -
> "(@)'(@)"""''"**|(@)(@)*****''(@)
>
> ONCE YOU'VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT OTHER WOMEN WHO LIKE TO DRINK AND
> HAVE FUN
>
> (Obviously this was written by and to a woman)
>
>
> WHEN GIRLS DRINK TOO MUCH............
>
> 1. WE HAVE ABSOLUTELY NO IDEA WHERE OUR PURSE IS.
>
> 2. WE BELIEVE THAT DANCING WITH OUR ARMS OVERHEAD AND WIGGLING OUR BUTT
> WHILE YELLING "WOO-HOO!" IS TRULY THE SEXIEST DANCE MOVE AROUND.
>
> 3. WE'VE SUDDENLY DECIDED THAT WE WANT TO KICK SOMEONE'S ASS AND HONESTLY
> BELIEVE WE COULD DO IT TOO.
>
> 4. IN OUR LAST TRIP TO PEE, WE REALIZE THAT WE NOW LOOK MORE LIKE A
> HOMELESS HOOKER THAN THE GODDESS WE WERE JUST FOUR HOURS AGO
>
> 5. WE START CRYING AND TELLING EVERYONE WE SEE THAT WE LOVE THEM SOOOOO
> MUCH.
>
> 6. WE GET EXTREMELY EXCITED AND JUMP UP AND DOWN EVERY TIME A NEW SONG
> PLAY'S BECAUSE "OH MY GOD! I LOVE THIS SONG!"
>
> 7. WE'VE FOUND A DEEPER/SPIRITUAL SIDE TO THE GEEK SITTING NEXT TO US.
>
> 8. WE'VE SUDDENLY TAKEN UP SMOKING AND BECOME REALLY GOOD AT IT.
>
> 9. WE YELL AT THE BARTENDER, WHO WE BELIEVE CHEATED US BY GIVING US JUST
> LEMONADE, BUT THAT'S JUST BECAUSE WE CAN NO LONGER TASTE THE GIN.
>
> 10. WE THINK WE ARE IN BED, BUT OUR PILLOW FEELS STRANGELY LIKE THE
> KITCHEN FLOOR (or the mop?)
>
> 11. WE FAIL TO NOTICE THAT THE TOILET LID'S DOWN WHEN WE SIT ON IT.
>
> 12. WE TAKE OUR SHOES OFF BECAUSE WE BELIEVE IT'S THEIR FAULT THAT WE'RE
> HAVING PROBLEMS WALKING STRAIGHT.
>
> SEND THIS ALONG TO ALL THE GIRLS YOU KNOW WHO LIKE TO HAVE FUN. MAKE THEM
> LAUGH AT THEMSELVES ... LIKE YOU PROBABLY DID....SADLY, MANY ARE TRUE!!


Takk fyrir sumarið allir saman !!! myndirnar koma vonandi brátt inná myndasíðuna


» 15 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 19:28:11 / drifaarna

ZZZZzzzzzzzz!!!!

Jæja...þá er maður komin heim í heiðar dalinn (Stykkishólm semsagt) og tekur lífinu bara með ró ...en það er ekki eins og blóðir fari að renna eitthvað hraðar þegar maður er mættur í hólminn, langt frá því!

Kláraði semsagt prófin fyrir ca. tveimur vikum, og gekk bara ágætlega....náði öllu. Svo helgina eftir það útskrifasðist ásdís sem kennari og gerði það bara vel...ekki hægt að segja annað. Um síðustu helgi fórum við aftur Norður og Olga útskrifaðist úr MA. 17. júní....og auðvita kíkti maður aðeins á djammið. Fór til Árnýjar og þar voru Nanna, Árný, Snædís, Svala, Böðvar og vinur hans, útskriftarballið var að að verða búið þegar við mættum þangað og ég og Böðvar héldum í  Sjallann á stuðmenn, ekki leiðinlegt það! Bærinn bar fullur af fólki og var þetta næstum því einsog um verlsó

Þessa dagana er maður bara að vinna á bensó og leigunni, hanga í íbúðinni hennar Önnu, rúnta, hreyfa sig, í sundi og reyna að ákveð sig með næsta haust....alltof erfið ákvörðun :S

En það verður ekki mikið um pistla í sumar þar sem netið heima er ansi hægfara og ég nenni bara ekki að blogga...allavega ekki á sumrinn, nóg annað að gera!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 18:48:33 / drifaarna

Námsmaður eða hvað ?

( x ) Þú hefur búið í íbúð þar sem eru 3 sófar og enginn þeirra í stíl.

(    ) Þú lýtur á McDonalds ostborgara og franskar sem fjölbreytilega máltíð.

( x ) Þú hefur notað debetkortið þitt til þess að borga færslu upp á 20 kr.-

( x ) Þú átt glæsilegt safn af tómum bjórflöskum.

( x ) Þú hefur séð tvær sólarupprásir í röð án þess að sofa.

(   ) Glasasafnið þitt samanstendur af pappaglösum frá McDonalds og 10/11.

(   ) Nærfötin þín grotna niður á milli þvotta.

( x ) Þú manst ekki hvenær að þú þvoðir bílinn þinn seinast.

(   ) Þú getur safnað saman öllum þínum veraldlegu eigum í skottið á bílnum þínum í einni ferð.

(   ) Þú hefur þurft að réttlæta fyrir sjálfum þér að kaupa halogen lampa.

(   ) Það fyrsta sem þú gerir á morgnanna er að velta þér á hliðina og kynna þig.

(   ) Þér finnst eðlilegt að fara að sofa klukkan 3 á nóttunni.

( x ) Þú lítur á pizzu sem einn af 4 stærstu fæðuflokkunum.

(   ) Þú lítur á hina 3 sem bjór, McDonalds og kaffi.

(   ) Þú mannst ekki hvenær mamma þín á afmæli eða augnlitinn hjá kærastanum þínum/kærustunni þinni en þú kannt númerið hjá Dominos utan að.

(   ) Þú hefur misst úr tíma til þess að ná endursýningunum á Skjá1.

(   ) Eða til þess að spila World of Warcraft.

( x ) Þú hefur spjallað við meðleigjendur þína á MSN þegar að þið eruð heima hjá ykkur.

(   ) Þú hefur leitað lengi eftir svarta kortinu þínu frá Visa bara til þess eins að fá ódýrari bíómiða í sambíóin.

(   ) Þú hefur vakað alla nóttina til þess eins að missa ekki af fyrsta tímanum á morgnanna.

( x ) Þú heilsar starfsfólkinu í sjoppunni næst skólanum með nafni.

( x ) Þér finnst ekkert óeðlilegt við það að eyða laugardagskvöldum í lærdóm.

(   ) Þú hefur einhverntímann, sem hluta af skólaverkefni, fylgst með hvernig efni frá þér berst um internetið.

(   ) Þér bregður við að hitta fólk sem hvorki þarf né vill lesa bækur.

(   ) Þú hefur farið með bækur úr skólanum á bar til þess að lesa.

(   ) Þú gefur kaffihúsunum einkunn eftir því hversu gott þráðlausa netið er þar og hvort að þar séu innstungur fyrir ferðatölvuna þína.

(   ) Þú vitnar í skólabækurnar í samtölum við vini og kunningja.

( x ) Þú tengir allt sem þú sérð og heyrir við eitthvað sem þú hefur nýlega verið að læra um.

(   ) Þú hefur rökrætt námsefnið þitt og akademísk vinnubrögð á fótboltaleik eða á djamminu.

(   ) Þú hefur eitt meira en 1000 kr.- í ljósritun á Þjóðarbókhlöðunni í heimildarvinnu fyrir eitt verkefni.

(   ) Bókasafnskortið þitt ber greinileg merki ofnotkunar.

(   ) Heilbrigður morgunmatur að þínu mati er kaffi og sígaretta.

(   ) Þú kannt leiðarkerfi strætó utan að.

( x ) Þú getur sagt fyrir um hvað klukkan er út frá fjölda nemenda á bókasafninu hverju sinni.

(   ) Það er tölva á bókasafninu sem þú lítur á sem „þína:“

(   ) Þér hlakkar til þess að fá sumarfrí vegna þess að þá geturðu eytt meiri tíma til rannsókna án þess að verða fyrir truflunum frá samnemendum þínum.

(   ) Þú lítur á samviskubit sem óbeina afslöppun.

(   ) Þú ferð óafvitandi að greina gríska stafrófið áður en þú áttar þig á því að þetta er álettrun á nemendafélagspeysu en ekki málfræðilegur brandari.

(   ) Þú finnur sjálfan þig í þeim aðstæðum að útskýra fyrir krökkum að þú sért í „16. bekk.“

(   ) Þú ert farin að nota latínu til þess að leggja áherlsu á brandarana þína.

(   ) Þér hlakkar til þess að þvo vegna þess að gefur þér smá tíma til afslöppunar.

( x ) Þú átt fleiri nemendafélags- og afsláttarskírteini heldur en debet- og kreditkort.

(    ) Þú hefur tekið með þér námsbækur í frí og í alvörunni verið að læra.

(   ) Kennarinn þinn mætir ekki í tíma og þið ræðið námsefnið samt sem áður.

(   ) Þú getur eldað og verið að glugga í skólabókunum á sama tíma.

(   ) Þú skipuleggur frí miðað við lestraráætlanir þannig að þú vinir þínir getið lært saman.

(   ) Þér finnst afslappandi að sitja í almenningsgörðum og glósa.

(   ) Þú stendur sjálfan þig að því að vitna í heimildir í samtölum.

( x ) Þú skilur ofangreindar setningar.

 

 

Já...ég er semsagt ekki þessi ekta námsmaður, en lærdómur er allavega það eina sem kemst að hjá manni þessa dagana, og þá er auðvita tilvalið að blogga :D

Er búin að fara í tvö próf...ensku 302 og fél. 303, gekk svona bara lala....held að það verði engin 10 þetta árið, ohh...hvað það er nú langt síðan maður hefur fengið eina svoleiðis í prófum :S



 

En ég held að ég segi skilið við þetta blogg....allavega yfir sumarið! Aldrei að vita hvar maður verður næsta haust og hvort " bloggþráin" geri vart við sig aftur....en hún hefur nú ekki verið neitt gríðarlega sterk undanfarna daga.



 

En hvað á annars að gera í sumar......Færeyskir, grundfirskir, danskir dagar allavega og hvað svo?




» 12 hafa sagt sína skoðun

16.05.2006 00:19:52 / drifaarna

Gamli Eurovision fýlingurinn ekki alveg horfinn!

Er ekki frá því að það hlakkar svolítið í manni fyrir fimmtudaginn....jú gott fólk, þá mun silvía okkar nótt stíga á sviðið í Aþenu. Get ekki neitað því að vera komin með svolítið leið á henni...en hlakkar samt til að sjá hvernig þetta endar allt saman...í ruglinu eða hvað ??

Ég fór semsagt að kynna mér lögin og fann eitt gott....Danirnir eru eins og Sara Sædal...klikka seint ;)

Eurovision2006-DENMARK-Sidsel Ben Semmane-Twist of love

En að öðru aðeins merkilegra....það var góður þáttur á uppáhalds sjónvarpstöðinni minni í kvöld. Svört tónlist heitir þátturinn og rekur semsagt sögu dægurlagatónlistar blökkumanna

--> http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/?file=89589

Vill þakka Söru og Elín fyrir að hafa lagt land undir fót..ferðast langa dali og sagt skilið við ástkæra Stykkishólm yfir eina helgi til að heimsækja okkur hérna í Brekkuselinu. Við tókum chillið semsagt á þetta...átum nóg, rúntuðum, spiluðum, kynntum okkur útlendingana á efri hæðinni og lágum vel og lengi í sundi og sóluðum okkur. Fínasta helgi


» 10 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 23:28:33 / drifaarna

Palli my love....

Enn ein helgina á enda hérna á eyrinni þar sem Sólin er svolítið fyrir að sína sig...og ef ekki bara báða daga, gæti ekki gerst betra fyrir Drífu. En helgin var góð...og ef ekki bara vikan líka. en Helgin var nákvæmlega svona:

  • Ræktin
  • Ljós
  • Læra
  • Drama
  • Eldað fyrir FIMM manneskjur...sko Drífu!
  • Kani
  • Hárlitun
  • Brjálæsilega gott veður
  • bæjarferð
  • brynjuís
  • grillveisla og garðpartý í Brekkuseli
  • of Full :S
  • Palli í Sjallanum....
  • enn of full.....
  • 10/11
  • þynnka ???
  • Sund...en ef slöpp til að fá bikinífar !!
  • rúntur með Sveil
  • skúra
  • pizza

Hver er sinnar gæfusmiður....án ef gott veganesti!

Lagið: http://www.fornihvammur.com/omaria.mp3


» 11 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 19:28:35 / drifaarna

Sumar og Sól!

Það er aldeilis búið að vera gott veður síðustu daga og ég alveg komin í sumarskap....og þar með er ég búin að kaupa sumarkjólin! Á fimmtudaginn og föstudaginn var alveg heil tveggja stafa hitatala, og það í apríl.

Við stelpurnar kíktum aðeins í bæinn á föstudaginn í hádeginu og var það ótrúlega nice....helling af blyndfullum wma-ingum að dimmitera, alveg heiðsskírt og algjör steik. Helga og Hafdís stungu mig og Lilju bara af og því þurftum við að redda okkur fari uppí skóla og voru aðeins 5 mín. í næsta tíma......svo komu þær með allskyns afsakanir með að síminn hafi verið batteríslaus og þvíumlíkt...það þarf ekkert að ræða þetta tvisvar...þær stungu okkur bara af !!! Helga...Hafdís....

En að stórmerkilegum atburði....María Kúld ástin í lífi mínu, það eina sem heldur mér gangandi...hehe, nei kannski ekki alveg. En hún María á AFMÆLI í dag, skvísan orðin 19 ára og er útí Argentínu að njóta lífsins. Síðasti afmælisdagurinn hennar er nú aðeins eftirminnilegri en þá var sko haldið sóðalegt surprice afmæli fyrir gelluna sem endaði í ruglinu :D

                   

Skvísan veður í argentísku lambakjöti og er hástánægð með lífið....til hamingju með afmælið elskan mín !

Svo var skellt sér út á líifið í gær og gjörsamlega dansað af sér rassinn....sem er gott mál ;) Ég, Olga, Sigrún og Þóra vinkona þeirra tókum okkur til hérna heima og svo bara beint á Kaffi Akureyri þar sem var gjörsamlega pakkað á dansgólfinu. Hérna koma nokkrar myndir.......enjoy

                 

                

Ég er aldeilis dugleg að setja inn myndir með blogginu mínu !!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 00:03:09 / drifaarna

Þá er það búið....

welllaaa.....Páskafríið var lovveelyyyy, einsog búist var við!!

  • mættum í hólminn á ísilögðum Gúnda...keyrðum heim í blyndbil frá Ak í staðarskála...svo þegar við vorum komnar á vesturlandið tók sól við okkur og brendar mýrar :S
  • Ma vann Versló í Gettu Betur...kom svosem ekkert á óvart ;)
  • svaka partý hjá Auði á föstudeginum.....fyrir myndband hjá Sigmari og þeim, maður nýtti sér frítt áfengi og datt í það með henni Auði minni, endaði í höfðabænum og auður ágætlega hress:lol:
  • Svo skellti maður sér á tónleika á fiskunum....og enduðum aftur í höfðabænum!! Keflvíkingar alveg að meika það..... Vignir Sveinson kom með línu kvöldsins "öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir"
  • skelltum okkur suður á miðvikudeginum....verslaði nú ekki mikið en fékk nú að sjá Ellen gjörsamlega "falla" fyrir Sautján á Laugaveginum.:haha: hahaha
  • Svo var ball með Matta og þeim sama kvöld og mín elskulega frænka Anna Margrét komst ekki inn sökum aldurs...en fann sér þó annað til dundurs :P haha
  • svo tók maður nokkrar vaktir á Bensó....rifja upp gömlu taktana !!
  • Á föstudeginum var sko brjálað stuð...80's partý í Kúldshúsi og ball á fiskunum með Joe Gæ Band og alveg troðið!!
  • svo var nú bara tekið því rólega fram að Þriðjudeginum, og svo var brunað aftur Norður með dulítin trega í hjartanu..en þetta er nú í lagi núna :D

Svoleiðis var það nú.....en núna bíður maður nú bara spenntur eftir sumrinu!! Eyða því í íbúðinni hennar Önnu Möggu...allvega þynnkudögunum ;)

Enda þetta með nokkrum góðum....

             svaka sveifla !!

Þessar að meika það í dansinum :D

Ef að þessar myndir heilla ykkur...kíkið þá inná www.picturetrail.com/drifa88 !! Verðið ekki fyrir vonbrigðum ;) hehe


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 14:59:56 / drifaarna

**20 ára**

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKAN MIÍN ;)

Já..stór áfangi hjá Olgu systir...gellan bara orðin 20 ára, það er í  lagi :D

Annars bara gleðilega páska til allra......


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 20:40:18 / drifaarna

Varúð...Vorsicht..caution...FLUGUR !!!

Jahérna...ef þetta er ekki tími á pistil þá veit ég ekki hvað....

Rétt í þessu, þegar ég sat yfir hafragrautnum mínum og gluggaði í Fréttablaðið, rak ég augun í sláandi frétt um húsflugur. Mér er alls ekki vel við þessi kvikindi og þá sérstaklega ekki þegar þær sækja í matinn manns. Þess vegna hef ég líka velt því fyrir mér hvort þær séu alveg meinlausar einsog hún mamma mín hefur sagt mér...og þarna kom þetta eins og blaut tuska í andlitið á mér......8|

,, Húsflugan er útbreidd um allan heim og sökum aðlögunarhæfni er hún talin ein af fjórum hættulegustu meindýrum sem lifa á jörðinni í dag. Húsflugur hafa rana í stað munns sem sogar næringuna upp. Þær hrækja fyrst meltingarsafa til að leysa upp efni í fæðu, saur og sorpi. Þegar þær síðan setjast á matinn þinn eru þær áð dreifa sýklum. Því um leið og þær fljúga upp skíta þær þeim efnum sem þær sugu síðast, en það gæti verið hundaskítur utan af götunni eða eitthvað af öskuhaugunum. Talið er að á síðast ári hafi 1,2 milljónir manna látist af völdum húsflugunnar. Þær bera líka með sér bakteríur og sjúkdóma eins og mislinga, skarlatsótt, berkla, taugaveiki, svarta dauða o.fl."

Það liggur við að grauturinn hafi bara staði ð í mér...svo illa var mér brugðið við að lesa þetta! Núna hefur hræðslan mín við flugur aukist um helming, og núna þegar styttist í sumarið fer allt að verða morandi í þessum kvikindum!!!! Ég vildi bara deila þessu með ykkur því ég þoli ekki að lifa ein í óttanum.

En að öðru aðeins skemmtilegra....PÁSKAFRÍIÐ er eftir 4 daga :haha: Gleði..Gleði...ég get bara ekki beðið eftir að komast heim í Hólminn.

ps. Þessi pistill var tileinkaðu Helgu Einars, bekkjarsystur í 2.G. Hún er án efa lífshræddasta manneskja sem ég þekki!


» 12 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 21:36:32 / drifaarna

**Afmælishelgin**

Játsí.....þá er afmælishelgin á enda og aðeins afmælisdagurinn eftir :D Ekki beint mikil tilhlökkun fyrir honum...enda skóli til sex á morgunn og tvö munnleg próf :S Hjördís gerði sér leið hingað á Ak til að fagna með mér afmælinu og segja hæ við Sigrúnu og Olgu...tíhíhíhí!! Laugardagurinn var ekki af verri endanum, bökuðum Betty Crocker köku...helvíti góða og svo var bara að gera sig ready fyrir Palla babe 8)

Fyrir Palla hittumst við stelpurnarhérna í Brekkuzz  ásamt nokkrum fleiri og fengum okkur í glas! Ég var eitthvað hrædd um að það yrðu læti og Kerlingarherfan sem ég leigi hjá myndi reka okkur út...en svo komumst við að því að það er alltaf ég sem er með mestu lætin :S Kemur þeim sem þekkja mig ekki á óvart. Þannig að ég verð að fara að taka mig á. Svo var bara haldið í sjallann og dansað af sér rassinn.....shæsseeee hvað það var gaman :haha:

Í dag var sko ekki tími í neina þynnku (nema kannski núna í augnablikinu), heldur var skellt sér uppí fjall á skíði. En þvílík kvöld í stólalyftunni.....það var nístings kuldi og vindur :S Tókum nokkrar ferðir en ástandið á okkur og veðrir var ekki sem best....samt alltaf hressandi.

Svaka góð helgi í alla staði og tilvalið að skella nokkrum myndum með ! meira inná http://www.picturetrail.com/drifa88 ! enjoy

Við Lilja

Eitthvað að nördast

Vantar ekki pósið...góður Böðvar ;) hehe

Ohh...svolítið sætt :haha:

Svöl mynd eða hvað ;)?


» 21 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 22:58:53 / drifaarna

That Jazz !

Shitturinn....hvað er það sem veldur þessu bloggleysi hjá mér !!? Er það letin í mér, pirringur á þessu bloggrugli, ekkert spennandi að segja frá eða einfaldlega bara engin áhugi ? erfið spurning....

Hvar skal nú byrja.....síðustu fjórar helgar eru búnar að vera fínar. Vera og Anna margrét komu í heimsókn til mín hingað á Eyrina, og var alveg ótrúlega gaman að fá þær! Við tókum gott djamm og bara nutum þess að hanga saman. Leiðinlegt að Auður skildi ekki komast...en hún hefur víst nóg að gera heima í hólmi að sinni listinni:haha:  ( gat ekki sett inn myndir, greinilega ekki lengur hægt að copia af picture trail :whut: )

Svo líða vikurnar bara einsog alltaf...skóli, leti, þreyta, ræktin og læra !!!

Næstu helgi tókum við Lilja og Árný okkur á og skelltum okkur á djammið. Byrjuðum heim hjá Árný ásamt nokkrum bekkjarbræðrum og fleiri. Ótrúlega mikið stuð þar, svo þegar fólk var orðið vel fullt var skellt sér í sjallann. Lilja elskan alveg í panik að þylja upp kennitölur á leiðinni og var alveg handviss um að komast ekki inn. Svo gerði maður sér nú dælt við stjörnurnar...ég hef alltaf verið heit fyrir leikurum 8) hehe. Daginn eftir var bara fengið sér þynnkumat og rúntað.

svo á síðustu helgi komu nokkrir ungir piltar frá hólminum í skíðaferð hingað norður...og einsog ég sagði áðan þá er alltaf gaman að fá hólmara í heimsókn. Á laugardaginn fórum við systurnar svo í leikhús á Maríubjölluna og svo kíkti ég á djammið með strákunum. Ég var voða róleg þetta kvöldið, annað en Baldur. Hann alveg hreint lét ekki eldri kellingarnar í friði og fékk þær til að splæsa nokkrum sopum á okkur :D ég var víst að eyðileggja þetta eitthvað fyrir honum....sry baldur ;)

Það var konukvöld í skólanum hjá okkur og upplifði ég mína fyrstu reynslu af strippi og var sú reynsla ekki góð....jiminn, við vorum lengi að jafna okkur eftir þetta...svo slæmur var stripparinn :S En Helga Braga bjargaði kvöldinu...þvílík glamour drottning þar á ferð !

Fór í ferð með skólanum uppá Kárahnjúka á fimmtudaginn. Vöknuðum kl. 5 um nóttina og héldum austur...allir voða hressir eitthvað! Fórum uppá Kárahnjúka að skoða framkvæmdirnar, frekar subbulegt allt saman...en við Snædís komumst þó að því að ef það væri mella starfandi þarna myndi hún fá vel borgað ! Hver veit nema þær leynast þarna einhverstaðar ? Skoðuðum líka eitthvað stöðvarhús inní fjalli, gistum á Neskaupstað og enduðum á því að kíkja á Álverið sem er verið að byggja á Reiðarfirði. Mikil áróðursferð en áhugavert að sjá þetta allt saman.

Helgin var ágæt....æjj nei, eiginlega bara lærdómur og leiðindi! Nóg að gera svona rétt fyrir páska...fyrirlestrar, ritgerðir, munnleg próf, tímaritgerðir og bara nóg að gera! Gaf mér þó tíma til að horfa á þó nokkuð marga þætti í Summerland....ég get ekki beðið eftir sumrinu !!!

Komst yfir eldgamla bók um björk frá '96 í kaupfélaginu á Egilstöðum..helvíti skemmtileg :)

,, Með háskalega rangeygða söngkonu, sem svarar bæði til Denis Lavant og litlu stúlkunnar sem sker af sér varirnar í martröðum þínum stefna Sykurmolarnir beint og markvisst að mikilvægari þáttum lífsins "

Bið að heilsa í bili.....hve leng get ég ekki svarað ;)

---> Drífa Bóadóttir.........


» 13 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 22:11:30 / drifaarna

**Valentínusardagurinn**

Myndir segja oft meira en mörg orð!!

Árný alltaf jafn myndaleg húsmóðir...Doritos og ostasós í hvert mál !

Ég og Svalan

Hvað er í gangi þarna ?

Lilja var alveg brjáluð þetta kvöld !!

og lét eins og óð væri....

Árný Ósk eitthvað einmanna á Valentínusardaginn..og kannski Nanna líka !?

..................................................................................................

Já...við stelpurnar skelltum okkur á ball með Páli Óskari á Valentínusardaginn...semsagt Árný og Nanna sem par og ég og Lilja! Svolítið skrýtið að fara á ball á þriðjudegin en létum okkur nú samt hafa það. Svo mun maður væntanlega blogga eftir helgina með Önnu og Veru og aldrei að vita nema myndir fá að fylgja :D


» 14 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 19:28:57 / drifaarna

klukk dæmi alltaf hreint

Ég get nú ekki verið minni manneskja en aðrir....

4 störf sem ég hef unnið um ævina :
1. Þórsnes...úff, geri það ekki aftur!
2. Pulsuvagninn Einar með öllu
3. Ásinn (videoleigan heima) ansi nice jobb
4. Bensó! 

4 bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:
1. Almoust famous
2.The motorcycle diaries

3. The pianist
4. Love and Basketball og Klappstýrumyndina hérna í denn !!

4 staðir sem ég hef búið á:
1. Í sth. og alltaf í sama húsinu..Kúldshúsi
2. Á Akureyri einmitt núna...Brekkuseli

4 sjónvarpsþættir sem mér líkar:
1. Sex and The city
2. Desperate Housewifes
3. Lost
4. One tree Hill og O.C og líka Friends

4 síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
1. Mbl.is
2. Ma.is
3. B2.is
4. blogghringurinn

4 staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Danmörk...einsog alllir!
2. Þýskaland..skólaferðalag og Frakkland líka
3. Kanarý..með fjölskyldunni
4. All over iceland

4 matarkyns sem ég held uppá:
1. kjúkklingur í réttum og líka eintómur
2. Pizza
3.hamborgarahryggur
4. og alskonar grænmetisréttir

4 staðir sem ég vildi heldur vera á núna:
1. Heima í Sth.
2. einhverstaðar í heitu landi á ströndinni!
3. Á balli með dj. Páli Óskari...alveg eins með Önnu frænku ;)

4. á skíðum

..............................................

Annar er það helst að frétta að Anna Margrét og Vera eru að koma hingað á Eyrina um næstu helgi...og ég hlakka svo til :D Ælta sko að taka almennilegt djamm með þeim, svo verður maður nottla að fá sér búkollu eftir djammið. Fara á Greifann og í Brynju !!!er það eitthvað fleira sem maður verður að gera á Ak ??


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3